„Við tókum málefni Tækniskólans til umræðu á fundi borgarráðs í dag. Umræður í borgarráði eru bundnar trúnaði, en ég held að mér sé óhætt að segja að það sé þverpólitískur vilji fyrir því að við sækjum fram og útvegum Tækniskólanum lóð í Reykjavík og styðjum þannig við iðn- og tæknimenntun í borginni.“