Hið rúmlega fertuga ítalska flugmóðurskip Guiseppe Garibaldi lagði við bryggju í höfninni í Jakarta á Indónesíu í dag. Indónesar hafa keypt skipið og hyggjast breyta nafni þess í KRI Sriwijaya.Indónesísk stjórnvöld segjast þó ekki ætla að nota skipið til hernaðar. Þvert á móti sé það hugsað til að bæta viðbrögð yfirvalda við náttúruhamförum. Til stendur að hafa 18 þyrlur um borð og allt að 830 manna áhöfn. Muhammad Ali, yfirmaður sjóhersins, segir að með tilkomu skipsins verði auðveldara að koma vistum og björgunarbúnaði á hamfarasvæði en áður.Giuseppe Garibaldi kom til hafnar í dag.EPA / MAST IRHAM