Hákarl drap karlmann á sundi

Karlmaður sem var á sundi úti fyrir ströndinni við Perth í vestanverðri Ástralíu lést eftir að hákarl réðst á hann. Talsmaður lögreglunnar í Vestur-Ástralíu greindi frá árásinni og afleiðingum hennar. Hákarlinn synti upp að manninum og beit hann. Sárin sem af hlutust voru það alvarleg að maðurinn lést af völdum árásarinnar.Stutt er síðan hákarl réðst á brimbrettakappa í Ástralíu. Sá særðist í árásinni.Björgunarsveitir úti fyrir Perth.AP/Australian Broadcasting Corp / Andrew O'Connor
Hákarl drap karlmann á sundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd