Norðlendingar bætast í kapphlaupið um Tækniskólann

Bæði Akureyri og Norðurþing hafa lýst yfir áhuga á að fá Tækniskólann norður. Þetta eru þá sveitarfélög númer fjögur og fimm sem gera hosur sínar grænar fyrir skólanum. Skólinn ætlaði að byggja í Hafnarfirði en eftir að í ljós kom að bærinn gat ekki staðið við skuldbindingar sínar um að útvega lóð, hafa Mosfellsbær, Reykjavík og Reykjanesbær sýnt áhuga á að fá skólann til sín.Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, tjáði sig um málið á Facebook-síðu sinni í gær. Þar segir hún:„Af hverju ekki að byggja upp Tækniskólann á Akureyri og skapa öflugan vettvang fyrir tæknimenntun á háskólastigi á landsbyggðinni? Eitthvað sem lengi hefur verið kallað eftir. Það myndi færa menntun, þekkingu, störf og tækifæri út á land. Alvöru byggðastefna í einni sterkri aðgerð. Við hér í Akureyrarbæ
Norðlendingar bætast í kapphlaupið um Tækniskólann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd