Rigningin læðist upp að landinu en kemst ekki langt

Hægur vindur verður víðast hvar á landinu í dag. Sunnlendingar geta vænst þess að það þykkni upp yfir sjó og úrkomubakki komi inn á landið. Hann nær þó ekki langt. Annars staðar verða stöku skúrir á sveimi.Veðurspáin er svohljóðandi:Austlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað að mestu og stöku skúrir á víð og dreif, en dálítil rigning sunnantil seinnipartinn. Þokuloft með norður- og austurströndinni. Hiti 7 til 13 stig, svalast í þokuloftinu. Norðaustlægari á morgun, rigning eða súld með köflum, einkum norðaustantil, en úrkomuminna um landið suðvestanvert. Hiti breytist lítið.
Rigningin læðist upp að landinu en kemst ekki langt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd