Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta hefur Morgunblaðið eftir Ástráði Haraldssyni, ríkissáttasemjara, sem segist hafa hitt samningsaðila í gær og fyrradag og þetta hafi verið niðurstaðan.