Eini flokkurinn sem berst gegn stríði Rússa í Úkraínu hefur verið útilokaður frá þingkosningum um helgina. Stjórnvöld í Kreml hampa hermönnum í framboði.Kosið verður um 450 sæti í Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, auk fulltrúa á héraðsþing og héraðsstjóra víðs vegar um landið fram á sunnudag. Á kjörtímabilinu hefur Sameinað Rússland, flokkur Pútíns forseta, haft yfir 300 sæti í Dúmunni. FÓLK Í YABLOKO HANDTEKIÐ Stjórnvöld hafa alla þræði í höndum sér varðandi það hver fær að bjóða sig fram. Yabloko er eini flokkurinn sem eftir er sem berst gegn innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Dómstólar hafa bannað framboð hans í þingkosningunum.Lögregla hefur handtekið flokksmenn. Lev Shlosberg, einn af leiðtogum flokksins, var dæmdur í ellefu ára fangelsi og annar, Maksim Kruglov, hlaut sjö ára