Bláuggatúnfiskur fannst rekinn á land við Leiruvog á Akureyri síðasta föstudag, viku eftir að tunglfiskur fannst rekinn þar skammt frá. Akureyri.net hefur eftir Magnúsi Víðissyni og Hreiðari Þór Valtýssyni, vísindamönnum í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri, að merkilegt sé að finna þessar fisktegundir í Eyjafirði og jafnvel stórmerkilegt að rekast á þær báðar með skömmu millibili. Báðar tegundir lifa almennt í talsvert hlýrri sjó og Hreiðar Þór nefnir að nú sé hlýtt tímabil í hafinu, sjávarhiti sé um tíu gráður. Þá verði einna helst vart við svona sjaldgæfa gesti sem séu annars sunnar. Hann segir þó engar heimildir fyrir því að bláuggatúnfiskur hafi fundist í Eyjafirði áður þótt hann veiðist af og til fyrir sunnan land auk þess sem hann nefnir dæmi úr Ísafjarðardjúpi og Vopnafirð