Ursula von der Leyen boðar að í dag verði 3,3 milljarðar evra afhentir Úkraínumönnum, meðal annars til að kaupa eða smíða eldflaugar og dróna. Þessi greiðsla kemur til viðbótar þeim 15 milljörðum sem Úkraína hefur þegar fengið í ár.Von der Leyen greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum X og rifjaði upp að sambandið hefði í liðinni viku samþykkt fjármögnun á Patriot-loftvarnarkerfum gegnum stuðningslánakerfið fyrir Úkraínu.Eftir símtal við Volodymyr Zelensky forseta væri ljóst að meira þyrfti til. Því vildi hún tilkynna að sambandið væri reiðubúið að nýta það fjármagn sem eftir stendur af SAFE-fjármögnunaráætluninni á sviði varnarmála til að hrinda af stað nýju sameiginlegu varnarverkefni þess og Úkraínu.Þannig renni afgangsfjármunir beint í að styðja vopnaframleiðslu Úkraínumanna, sem eru auk