Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands til fundar klukkan tólf á hádegi í dag. Morgunblaðið hefur þetta eftir Ástráði sem segist ætla að gera úrslitatilraun til að koma í veg fyrir ótímabundið verkfall flugvirkja sem hefst að óbreyttu aðfaranótt 23. september. Ástráður kveðst hafa hitt samningsaðila á miðvikudag og fimmtudag og að niðurstaðan hafi verið að boða til samningafundar. Ríkissáttasemjari hefur þann möguleika, lögum samkvæmt, að leggja fram miðlunartillögu sem fresta myndi verkfalli meðan greidd væru atkvæði um hana. Icelandair hefur sagt ágreining vera mestan um launaliðinn.Morgunblaðið hefur eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, að fyrirhugað verkfall sé þegar tekið að hafa ve