Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, tilkynnti í dag að Írland muni ekki taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, á næsta ári. Keppnin fer fram í Búlgaríu. RTÉ greinir frá.Írland var meðal fimm þjóða sem sniðgengu keppnina í fyrra. Hinar fjórar voru Spánn, Holland, Slóvenía og Ísland.Írar eiga glæsta sögu í keppninni. Auk Svía hafa þeir oftast allra þjóða unnið keppnina, sjö sinnum. Þá eru þeir eina þjóðin sem unnið hefur þrisvar í röð (1992, 1993 og 1994). Þeir hafa þó ekki unnið síðan árið 1996. SNIÐGANGA ÞRÁTT FYRIR ÚRBÆTUR Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, hafa gert breytingar á fyrirkomulagi keppninnar til að reyna að koma til móts við gagnrýni.Til að mynda verður aftur dómnefnd á undanúrslitakvöldum og hámarksfjöldi atkvæða með hverri atkvæðagreiðsluaðferð verðu