Ættu að endurskoða viðskiptalíkanið frekar en að gaslýsa almenning

Stjórn Eflingar lýsti samstöðu með Wolt-sendlum í dag eftir að um 60 sendlar lögðu niður störf í gær til að mótmæla kjaraskerðingu. Þeir sögðu fyrirtækið hafa lækkað laun þeirra um allt að 40 prósent á einu ári. Starfsfólk Eflingar hefur undanfarið verið í samskiptum við nokkra sendla og mun funda með þeim á næstu dögum.„Á fundi stjórnar var tekin ákvörðun um að bjóða þeim afnot af húsakynnum félagsins til þess að funda og við erum líka tilbúin til þess að bjóða þeim aðgang að starfsfólki félagsins jafnvel þótt þeir séu ekki félagsmenn,“ segir Sólveig Anna.„Við bindum bara miklar vonir við að við getum liðsinnt þeim í þessum erfiðu aðstæðum sem þeir eru í,“ segir hún.Formaður Eflingar segir til háborinnar skammar fyrir íslenskt samfélag að Wolt komist upp með starfshætti sína. Stjórn félag
Ættu að endurskoða viðskiptalíkanið frekar en að gaslýsa almenning

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd