Enginn sannleikur – bara ólíkar upplifanir

„Hann er sár út í þetta allt saman. Ég skil það að mörgu leyti. Ég er líka sár og reið yfir að það sé verið að brigsla manni um ýmislegt sem á ekki við rök að styðjast.“Þetta segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, um ummæli Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra, um að hún hefði krafist afsagnar hans meðan hann lá á sjúkrahúsi í desember.Inga segir hann hafa stigið fram og lýst sinni upplifun en hennar sé allt önnur.„Það er ekkert um sannleika að ræða, það er bara upplifun. Ég er ekki að upplifa þessa hluti eins og Guðmundur Ingi Kristinsson gerir.“Hún segist ekki hafa sagt honum að segja af sér ráðherraembætti.Fréttin verður uppfærð.
Enginn sannleikur – bara ólíkar upplifanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd