Níu ákærðir í tengslum við stærsta kókaínsmygl sögunnar

Níu karlmenn eru kærðir í tengslum við Straumsvíkurmálið svokallaða. Þar af eru sex erlendir ríkisborgarar og þrír íslenskir. Ákæruvaldið hefur farið fram á að gæsluvarðhald yfir mönnunum verði framlengt um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna.Ákæran, sem fréttastofa hefur undir höndum, er í þremur hlutum. Fyrri hluti ákærunnar er á hendur fimm erlendum mönnum: Vasile Costache, Arthur De Araujo Faria, Corneliu Radulescu, Eziquiel De Lima Pereira og Wagner Alexandre De Silva.Þeir eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að sammælast um og framkvæma innflutning á 106,2 kg af kókaíni. Styrkleiki efnanna var 77%-81% sem samsvarar 86%-91% af kókaínklóríði.Fíkniefnin, sem voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, voru falin í sjókistu
Níu ákærðir í tengslum við stærsta kókaínsmygl sögunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd