Tvær af þremur tillögum sem starfshópur um breytingar á kosningalögum leggur til þurfa aðeins samþykki einfalds meirihluta á Alþingi. Aðeins þriðja tillaga starfshópsins, sem snýst um úthlutun jöfnunarsæta til kjördæmalista og hefur áhrif á hringekjuna svokölluðu á kosninganótt, þarf samþykki tveggja þriðju hluta á Alþingi. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa því þingstyrk til að samþykkja meginbreytingarnar sem hópurinn leggur til.Starfshópurinn var skipaður í september í fyrra og var ætlað að vinna frumvarp sem ætti að auka jafnræði atkvæða, en innan ramma stjórnarskrárinnar. Í starfshópnum sátu þrír prófessorar: Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði sem var formaður, Sigrún Helga Lund, prófessor í tölfræði og Þorkell Helgason, prófessor í stærðfræði. FÆKKAR UM FJÓRA Á NOR