Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir frelsissviptingu í Vatnagörðum

Davíð Bjarni Thoroddsen var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir gróft ofbeldi og kynferðisbrot gagnvart æskuvini sínum sem hann frelsissvipti aðfaranótt 29. janúar 2023.Tveir aðrir áttu þátt í árásinni sem var gerð í Vatnagörðum í Reykjavík. Mennirnir þrír voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2025. Davíð hlaut þá tveggja og hálfs árs dóm.Maðurinn sem varð fyrir árásinni, Garibaldi Ívarsson, sagði sögu sína í Kveik í október 2023. Hann komst undan við illan leik. Árásarmennirnir eltu hann uppi en vegna áverka hans skildu þeir hann eftir og létu hringja á sjúkrabíl.Ofbeldið var tekið upp. Þar sást Davíð meðal annars sparka í, slá hann og ógna honum með kúluhamri. Þá sást Davíð þvinga Garibalda til að klæða sig úr, neyða hann til að dansa nakinn og reka rör að kynfæras
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir frelsissviptingu í Vatnagörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd