Framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja segir óvissu um framhaldið hjá fiskþurrkuninni á Laugum, eftir að starfsleyfi þeirra var fellt úr gildi. Þeir leiti leiða til að fá úrskurðinum hnekkt, enda byggi hann eingöngu á annmörkum við eftirlit eða gagnasöfnun opinberra stofnana.Fréttastofa ræddi við Gest Geirsson, framkvæmdastjóra landvinnslu Samherja, um hádegisbil:Samherji skoðar leiðir til þess að fá úrskurði umhverfis- og auðlindamála hnekkt, en með honum var starfsleyfi fiskþurrkunarinnar á Laugum fellt úr gildi. Einn af þeim sem kærði vinnsluna segist ekki hafa séð aðrar leiðir færar.Haraldur R. Sverrisson er einn íbúanna á Laugum sem kærðu starfsleyfi vinnslunnar til Úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Hann hafi ekki séð aðrar leiðir færar, eftir að kvarta undan starfseminni í á