Það er ekki sama hvort þú ert í Kópavogi eða Vesturbæ Reykjavíkur þegar þú hlustar á söng skógarþrasta. Skógarþrestir á Íslandi hafa nefnilega svæðisbundnar mállýskur og syngja því ekki allir sama lagið.Hlynur Steinsson líffræðingur hefur umsjá með nýju rannsóknarverkefni hjá Náttúrusafni Kópavogs sem snýst um söfnun og kortlagningu á mállýskum skógarþrasta út um allt land.„Við erum að byrja söfnun meðal almennings, þar sem við fáum upptökur frá fólki af skógarþröstum í sínu hverfi og við greinum þær til mállýskna.“ ALLT ANNAÐ LAG Á MILLI HVERFA Hlynur hefur þó sjálfur um tíma safnað upptökum af söng skógarþrasta og segir hann söng þeirra magnað fyrirbæri.„Þeir syngja mjög svæðisbundið, sama lagið er sungið á ákveðnu svæði. Til dæmis innan höfuðborgarsvæðisins eru um 15 meginmállýskur.“