Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra og fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, segir að Inga Sæland, formaður flokksins, hafi krafist að koma inn á sjúkrastofu hans þegar hann var að jafna sig eftir hjartaaðgerð til að segja honum að hann yrði að hætta sem ráðherra.Því hafi hann sagt sig úr flokknum í apríl í vor.„Það sem varð þess valdandi að ég ákvað að fara úr Flokki fólksins var samtal sem Inga Sæland átti við konuna mína í bifreið, þar sem hún var á leið heim frá sjúkrahúsinu þar sem ég var búinn að vera í aðgerð. Níu dögum eftir aðgerðina,“ segir Guðmundur Ingi.„Það var samtal um að hún vildi koma inn á sjúkrastofuna og hitta mig vegna þess að henni fannst ég hafa verið allt of lengi frá, níu daga og þetta gengi ekki upp. Ég yrði bara að hætta sem r