Skerða byggðakvóta um 1.200 tonn

Litlar og millistórar útgerðir biðu þess með óþreyju eftir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra gæfi út reglugerð um ráðstöfun þess afla sem rennur til byggðakerfisins svonefnda, sem einnig er nefnt 5,3% kerfið. Það vísar til þess hlutfalls sem dregið er frá heildarafla fyrir almenna úthlutun kvóta til byggðakerfis sjávarútvegsins.Reglugerðin var gefin út í gær og lækkun aflamarks til byggðakerfisins nemur 5,8%. Mikael Rafn Steingrímsson, framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Drangs og útgerðarfélagsins Skúla á Drangsnesi, er einn þeirra sem finna verulega fyrir áhrifum skerðingarinnar.Fyrirtækin eiga takmarkaðan eignarkvóta en starfsemin byggist að miklu leyti á almennum byggðakvóta, sértækum byggðakvóta og línuívilnun. HELMINGSSKERÐING Á ÖRFÁUM ÁRUM „Það slær mann strax þarna að byggðakv
Skerða byggðakvóta um 1.200 tonn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd