Kópavogsbær hyggst annað árið í röð takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5%, sem er verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Ákvörðunin er þó bundin því skilyrði að forsendur kjarasamninga haldi og að ríki og önnur sveitarfélög séu reiðubúin að grípa til sambærilegra aðgerða.