FH Íslandsmeistari í 2. flokki en enginn mætti með bikar - Framkvæmdastjóri KSÍ biðst afsökunar

Í gær varð FH Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna þegar liðið vann stórsigur á Breiðabliki í lokaleik sínum í mótinu. FH þurfti jafntefli eða sigur á Eikarvellinum í Kópavogi til að tryggja Íslandsmeistaratitilinn. Það gleymdist hins vegar hjá KSÍ að mæta á staðinn með verðlaunapening og Íslandsmeistarabikar. Friðþjófur Helgi Karlsson, faðir leikmanns FH, birtir færslu á Facebook síðu sinni í dag þar sem hann lýsir yfir óánægju sinni á því að enginn frá KSÍ hefði mætt til að verðlauna liðið. Hann merkir framkvæmdastjóra KSÍ, Eystein Pétur Lárusson, í færslunni.
FH Íslandsmeistari í 2. flokki en enginn mætti með bikar - Framkvæmdastjóri KSÍ biðst afsökunar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd