Borgarráð frestaði á fundi sínum í dag að taka ákvörðun um það hvort Reykjavíkurborg ætli að afturkalla lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi við Suðurlandsbraut 76.Borgarráð frestaði einnig ákvörðun um að afturkalla úthlutun og rifta lóðarleigusamningi við söfnuð Moskvu-Patríarkatsins, það er Rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. Það snýr að lóðum við Bræðraborgarstíg 2 og Bakkastíg 8.Trúfélögin tvö hafa ekki hafið uppbyggingu á lóðunum.Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, sagði við mbl.is í gær að til stæði að selja lóðirnar á opnum markaði.RÚV / Ragnar Visage