Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu. Málið hefur yfirleitt verið kennt við Gráa herinn í fjölmiðlum.Grái herinn – baráttuhópur innan Félags eldri borgara – stefndi ríkinu vegna skerðinga á lífeyrisgreiðslum úr almannatryggingum.Greiðslur skerðast í hlutfalli við tekjur og greiðslur úr lífeyrissjóðum. Í málsókninni var því haldið fram að skerðingin bryti í bága við eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Ríkið var sýknað af öllum kröfum.Kærendur töldu að íslenska ríkið hefði með þessu brotið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu.Mannréttindadómstóllinn féllst á að taka fyrir hluta af kæru Gráa hersins í janúar í fyrra.Dómstóllinn hefur nú vísað málinu frá þar sem ekki var sýnt fram á að kærendur hefðu orðið fyrir mismunun sem bryti gegn 14.