Stéttafélagið Efling lýsir samstöðu með sendlum hjá fyrirtækinu Wolt í yfirlýsingu frá stjórn félagsins. Yfirlýsingin var samþykkt á fundi stjórnar félagsins fyrr í dag. Efling segist tilbúið að styðja baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og vill beita sér fyrir viðurkenningu á stöðu þeirra sem launþega.Sendlarnir lögðu niður störf tímabundið í gær og sögðu fyrirtækið hafa lækkað laun þeirra um allt að 40 prósent á einu ári. Stjórn Eflingar segir að starfsfmennirnir hafi sýnt mikið hugrekki með mótmælaaðgerðunum.Störf sendla hjá Wolt og öðrum sambærilegum fyrirtækjum séu launavinna. Laun og réttindi eiga því að vera í samræmi við íslenska kjarasamninga. Efling fordæmir það að verkafólk sé svikið um lágmarkskjör og látið vinna undir skilmálum gerviverktöku.Efling hafi undanfarið átt í samskip