Færri sendingar og minni eftirspurn í haust eru meðal þeirra ástæða að tekjur sendla hjá Wolt á Íslandi hafa minnkað síðan í upphafi ársins, að því er segir í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. Sendlar séu að meðaltali með laun upp á 6100 krónur fyrir hverja vinnustund. Fyrirtækið segist hafna því alfarið að það stundi gerviverktöku, búist sé við því að staðan batni eftir því sem líði á veturinn.