Fækkað verður í dómsmálaráðuneytinu um sex stöðugildi til að mæta aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar og uppfylla stefnu stjórnvalda um að fækka ríkisstarfsmönnum. Þetta staðfestir Páll Winkel, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, í viðtali við fréttastofu.Páll segir að tvær stöður verði lagðar niður og að tveir tímabundnir samningar verði ekki framlengdir. Að auki verður ekki ráðið í tvær stöður sem hafa losnað undanfarið.Samdrátturinn nær þvert á ráðuneytið en beinist ekki að ákveðnum deildum eða sviðum.Um 70 manns hafa starfað í ráðuneytinu svo fækkunin nemur um átta prósentum af starfsmannafjölda.