Fólk gæti þurft að hírast á göngum þó ný bráðamatsdeild minnki álag

Bráðaþjónusta Landspítalans verður efld með nýrri deild og tuttugu nýjum rýmum. Heilbrigðisráðherra og forstjóri spítalans segja þetta létta talsvert á bráðamóttökunni.Deildin verður tekin í notkun í lok mánaðar og er í gámeiningum við hlið bráðamóttökunnar í Fossvogi. Alma Möller heilbrigðisráðherra afhenti lyklana að deildinni í morgun og sagði lengi hafa verið þröngt á bráðamóttökunni í húsnæði sem væri barn síns tíma.Sjúklingum hafi fjölgað og erfitt reynst að útskrifa fólk af bráðamóttökunni og á viðeigandi deildir.Bráðaþjónusta Landspítalans verður efld með nýrri deild sem tekur við fólki sem ekki er hægt að útskrifa beint af bráðamóttökunni. Deildinni er ætlað að létta á bráðamóttökunni. Heilbrigðisráðherra segir deildina plástur á húsnæðisvanda spítalans. 600 MILLLJÓN KRÓNA PLÁST
Fólk gæti þurft að hírast á göngum þó ný bráðamatsdeild minnki álag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd