Karl Th. Birgisson blaðamaður er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í fyrrinótt. Hann var 62 ára.Karl vann við fjölmiðlun og önnur ritstörf stærstan hluta starfsævinnar. Hann ritstýrði meðal annars helgarblaðinu Pressunni, tímaritinu Heimsmynd og vefnum Eyjunni. Karl stýrði útvarpsþáttunum Orð skulu standa sem sendir voru út á Rás 1 um árabil og nutu mikilla vinsælda. Síðar stýrði hann spurningaþáttunum Viti menn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.Karl skrifaði og flutti pistla um þjóðfélagsmál á ýmsum vettvangi, meðal annars í Speglinum.Karl skrifaði fjölda bóka, þar á meðal bókina Forsetakjörið um forsetakosningarnar 1996 sem hann skrifaði ásamt Einari Karli Haraldssyni og Aldrei einn á vaktinni: saga af forseta og þjóð hans um forsetakosningarnar 2012.Flestar bækur Karls sneru