Mikill munur er á því hversu hratt fólk sem flytur til Norðurlandanna fær aðgang að velferðarkerfum þeirra. Munurinn er þó ekki aðeins milli ríkja heldur skiptir miklu hvort einstaklingur kemur frá ríki innan eða utan Evrópska efnahagssvæðisins og hvort greiðslurnar eru háðar búsetu, atvinnu eða iðgjaldagreiðslum.