Ulf Kristersson sagði af sér

Ulf Kristersson sagði af sér sem forsætisráðherra Svíþjóðar í morgun. Samsteypustjórn hans missti meirihluta sinn á þingi í nýafstöðnum þingkosningum.Vinstri-græna blokkin náði 176 þingsætum en hægriblokkin 173. Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmannaflokksins, leiðir að öllum líkindum stjórnarmyndunarviðræður sem í hönd fara. Nýtt þing kemur saman 28. september.„Það er nú í verkahring forseta þingsins að taka næstu skref í þá átt að koma á fót nýrri ríkisstjórn. Til að hægt sé að hefja þessa vinnu strax biðst ég lausnar frá skyldum mínum sem forsætisráðherra,“ skrifaði Kristersson í bréfi til forseta þingsins sem hann birti á samfélagsmiðlinum X.Fréttin hefur verið uppfærð.
Ulf Kristersson sagði af sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd