Lögregla í Suður-Afríku fann í morgun lík konu sem virðist hafa verið myrt, austur af Jóhannesarborg. Það er níunda konan sem finnst látin á aðeins tveimur mánuðum.Kempton-garði, þar sem líkið fannst, var lokað og rannsókn á vettvangi stendur þar yfir. „Við getum ekki haldið áfram að finna lík,“ sagði varalögreglustjóri við mergð blaðamanna. Lögregla býður þeim 400 þúsund rönd, andvirði tæplega þriggja milljóna króna, sem láta í té upplýsingar sem leiða til handtöku þess sem ábyrgð ber. Stjórnmálaflokkurinn Lýðræðissamstaðan, Democratic Alliance, býður enn hærri upphæð. Til rannsóknar er hvort morðið á konunni sem fannst í morgun tengist þeim fyrri. Ef tenging finnst gæti raðmorðingi leikið lausum hala. Kynbundið ofbeldi er vandamál í Suður-Afríku og samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna verðu