Einmanaleiki og vanlíðan hrjáir íslensk ungmenni

Fjörutíu og þrjú prósent 43% framhaldsskólanema meta andlega heilsu sína slæma samkvæmt árlegum lýðheilsuvísum sem kynntir voru í gær. Sviðstjóri hjá landlækni segir lýðheilsuáskoranir ungmenna hafa breyst töluvert á síðustu árum.„Helsta skýringin á þessu er aukinn einmanaleiki meðal ungs fólks og það er tæplega 30% ungmenna í framhaldsskóla sem finnur fyrir einmanaleika oft síðustu daga og það er eitthvað sem við þurfum að huga að,“ segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri hjá landlækni.Hún segir að mikilvægt sé að leita leiða hvernig hægt sé að fá ungmenni til þess að vera meiri þáttur af samfélaginu svo þau upplifi sig ekki ein.„Ef okkur líður ekki nógu vel þá gengur ekki nógu vel í því sem við tökum okkur fyrir hendur.“ MIKILVÆGT AÐ FYLGAST MEÐ SAMFÉLAGSMIÐLANOTKUN BARNA Samféla
Einmanaleiki og vanlíðan hrjáir íslensk ungmenni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd