Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar bindur vonir við að stjórnvöld grípi til aðgerða til aðstoðar við stóran hóp flóttamanna frá Úkraínu sem býr á Bifröst á fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Hópurinn telji 40 manns og þar af séu 24 eldri en 60 ára.Unnur Brá segir að sveitarfélagið fái ekki endurgreitt fyrir hópinn frá ríkinu vegna þess að hann hefur verið hér lengur en í tvö ár.„Þessi hópur er alltaf að stækka því ríkið borgar með hópnum í tvö ár og svo ekki lengur. Þá er ekkert annað í boði að sækja fyrir þennan hóp því þau eiga hér engin réttindi annað en að óska eftir fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu sem er ekki há, um 200 þúsund krónur á mánuði.“Fólkið geti ekki auðveldlega flutt annað vegna þess að húsnæðis- og leiguverð sé hátt auk þess sem vandinn myndi þá flytja