Vilja refsa kaupendum vændis líka

Hópur sérfræðinga í Japan hvetur stjórnvöld til að breyta löggjöf landsins og gera það refsivert að kaupa vændi. Í dag er það ekki refsivert en áratugum saman hefur það þó verið refsivert að selja vændi og geta vændiskonur átt yfir höfði sér sekt eða jafnvel fangelsisdóm. Japan hefur þannig verið sér á parti hvað þennan málaflokk varðar meðal þróaðra ríkja. Sérfræðingarnir segja að kaupendum ætti bæði að vera refsað fyrir að kaupa vændi í persónu en einnig á netinu, þar sem töluvert af vændisstarfsemi fer fram. Talið er mjög líklegt að dómsmálaráðuneyti landsins fari að tillögum ráðsins. Þær kveða einnig á um að samningaviðræður um vændi á götum úti og það að bera sig eftir vændi skuli gert refsivert. Talsmenn breyttrar löggjafar vilja að „norræna módelið“ verði tekið upp í Japan, þar sem
Vilja refsa kaupendum vændis líka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd