Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies hefur tryggt sér um tvær milljónir króna í fjármögun fyrir þróun hugbúnaðar á sviði hljóðhermunar fyrir gervigreind og snjalltæki. Það er í einföldu máli sagt tækni sem gerir tækjum kleift að heyra, að skynja og skilja hljóð. Til stendur að nota fjármagnið til frekari vaxtar í Bandaríkjunum.