Karl konungur vísar lýsingum bróður Díönu á bug

Bók Charles Spencers jarls þar sem hann minnist systur sinnar, Díönu prinsessu, hefur vakið viðbrögð bresku konungshallarinnar þó að bókin sé ekki enn komin út. Sjaldgæft er að konungsfjölskyldan bregðist við útkomu bóka og birtingu greina með þessum hætti.Bókin „Swan Song: Diana, My Sister“ kemur út í næstu viku en kaflar úr henni hafa verið birtir opinberlega. Spencer fjallar um systur sína, meðal annars um atburði eftir andlát hennar.Spencer segir meðal annars frá símtali við Karl, fyrrverandi eiginmann Díönu, sem þá var prinsinn af Wales. Spencer segist hafa lýst þeirri skoðun að Díana hefði ekki viljað að ungir synir hennar yrðu látnir ganga á eftir kistu Díönu. Hann segir Karl hafa brugðist ókvæða við – nokkuð sem Spencer segist hafa skynjað sem fyrirlitningu Karls á Díönu og óánægju
Karl konungur vísar lýsingum bróður Díönu á bug

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd