„Það sem er mér kannski efst í huga er hversu margir þurfa að víkja fyrir eina manneskju,“ segir fráfarandi fagstjóri á Vík um formann SÁÁ. „Hún er tilbúin að sitja sem fastast þrátt fyrir að spilaborgin sé að hrynja í kringum hana og hún ætlar samt ekki að fara neitt. Það er í rauninni magnað að sjá hvernig hún telur sér trú um að hún geti endurvakið traust starfsmanna.“