„Svona á ekki að geta gerst, hvað þá í svona stóru sveitarfélagi með svona stórt verkefni sem skiptir alla sem koma að málinu gríðarlega miklu máli,“ segir Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, um misheppnuð lóðarkaup Hafnafjarðarbæjar undir Tækniskólann.Í byrjun vikunnar lá fyrir að nýr Tækniskóli myndi ekki rísa í Hafnarfirði. Áformin runnu út í sandinn eftir að bærinn gat ekki útvegað lóð fyrir skólann eins og heitið hafði verið.Þetta kemur upp fimm árum eftir að áform um að reisa nýjan Tækniskóla við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt. Formleg ákvörðun var innsigluð fyrir tveimur árum og deiliskipulag vegna skólans var svo samþykkt í sumar.Eva Marín segir erfitt að draga sterkar ályktanir aðeins út frá því sem hún