Stýrivaxtahækkun Seðlabankans 21. ágúst leiddi til þess að bankarnir voru fljótir að hækka breytilega óverðtryggða vexti til samræmis. Aðrir vextir stóðu flestir hverjir í stað. Einn vaxtaflokkur hækkaði þó meira en nam hækkun Seðlabankans.Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína um 0,25 prósentustig og stóru viðskiptabankarnir þrír hafa allir hækkað óverðtryggða vexti sína að sama skapi. Breytilegir verðtryggðir vextir eru aftur á móti alls staðar óbreyttir. Sömu sögu er að segja af föstum óverðtryggðum vöxtum sem eru óbreyttir hjá Arion banka og Íslandsbanka en hafa ýmist staðið í stað eða hækkað um allt að 0,20 prósentustig hjá Landsbankanum.Fastir verðtryggðir vextir hafa hækkað hjá tveimur af þremur bönk