Í bréfi landeldisdeildar Bændasamtaka Íslands til forsætisráðherra og atvinnuvegaráðherra er kallað eftir því að stjórnvöld setji ný sérlög um landeldi í forgang. Bent er á að í gangi eða undirbúningi séu stór landeldisverkefni með samanlagðri fjárfestingu upp á fimm til sex hundruð milljarða króna.