Sleppt úr haldi þrátt fyrir að játa ítrekað samræði við barn

Landsréttur sneri á mánudag við gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manni sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn hefur játað að hafa ítrekað haft kynmök við stúlku undir 15 ára aldri.Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði manninn fyrir helgi í gæsluvarðhald til 7. október. Þetta gerði dómstóllinn að kröfu lögreglu sem rannsakaði brot mannsins gegn stúlkunni.Stúlkan greindi frá því að maðurinn hefði sex til átta sinnum haft kynmök við sig síðan um páska. Maðurinn sagði að það hefði gerst tíu sinnum.Dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra sagði að maðurinn væri undir sterkum grun um alvarleg kynferðisbrot gegn barni, brot sem hann hefði játað hjá lögreglu. Sá dómari taldi brotin þess eðlis að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt vegna almannahagsmuna.Maðurinn áfrýjaði niðurstöðun
Sleppt úr haldi þrátt fyrir að játa ítrekað samræði við barn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd