Skeifan kemur verst út allra staða í Reykjavík þegar íbúar eru spurðir um upplifun sína af ferðum og samgöngum. Hún var sá staður sem oftast var nefndur sem neikvæður, óháð því hvaða ferðamáta svarendur notuðu. Þetta kemur fram í niðurstöðum tveggja ára rannsóknarverkefnis Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um ferðavenjur og samgöngur í borginni. Í verkefninu voru jákvæð og neikvæð svæði...