Það hvessir aðeins við suðvestur- og vesturströndina í dag. Heilt yfir verður þó frekar rólegt veður, sérstaklega fyrir austan þar sem getur þó dropað aðeins.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðvestan 5-13 í dag, hvassast við suðvestur- og vesturströndina, en hægari breytileg átt austantil. Skýjað með köflum á Suðaustur- og Austurlandi, annars skýjað og dálítil væta. Hiti 7 til 14 stig, svalast fyrir norðan.Hæg breytileg átt á morgun. Skýjað að mestu og stöku skúrir á víð og dreif. Heldur svalara.