Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu.Hann er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum.Hlutur Lýðs í Arion banka er 2,74%, sem gerir hann að ellefta stærsta hluthafa þess banka, á eftir 9 lífeyrissjóðum og tveimur fjárfestingafélögum.Þessi innkoma Lýðs Guðmundssonar inn í hluthafahóp íslenskra fjármálafyrirtækja er athyglisverð í ljósi fyrri aðkomu hans að íslenskri banka- og fjármálastarfsemi.Lýður var ásamt bróður sínum stærsti eigandi Kaupþings í gegnum félag þeirra Exista hf, allt fram til þess tíma