Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tvenn slagsmál, hvort í sínum borgarhlutanum. Í öðru tilfellinu áttust þrír menn við á bensínstöð í vesturhluta Reykjavíkur og í hinu slógust ungmenni í hverfi austast í borginni.Maður nokkur í annarlegu ástandi með lambhúshettu á höfði var beðinn um að hætta að þeyta gjallarhorn og sírenur á bifreið í bílakjallara miðsvæðis í borginni. Hann hlýddi því og yfirgaf kjallarann að því er segir í dagbók lögreglu.Lögreglumenn ræddu við fullorðið fólk sem rótaði í ruslatunnum á svipuðum slóðum og handtóku jafnframt mann sem brotist hafði inn í bílskúr. Menn sem brutust inn í fyrirtæki í vesturborginni fundust hins vegar ekki.Bíll eyðilagðist í bruna í Kópavogi og lögregla rannsakar eldsupptök. Aukinheldur höfðu lögreglumenn afskipti af nokkrum ökumönnum og