Íslenskir peningaseðlar seldust fyrir háar fjárhæðir á uppboði sænska uppboðsfyrirtækisins Postiljonen í gær.Margir þeirra voru sagðir mjög sjaldgæfir. Alls voru boðnir upp 74 seðlar og seldust þeir allir fyrir samtals jafnvirði 84 milljóna íslenskra króna auk þóknunar og virðisaukaskatts, samkvæmt uppboðsskilmálum.Hæst verð fékkst fyrir safn sem auk annars innihélt fimm og tíu krónu seðla frá Landsjóði Íslands útgefna 1885 með mynd Kristjáns níunda konungs auk seðla frá því um aldamótin 1900 með mynd Kristjáns tíunda.Fyrir safnið voru greiddar sem nemur 5,6 milljónum íslenskra króna. Við söluverðið bætist svo tuttugu prósenta þóknun til Postiljonen og 25 prósenta virðisaukaskattur. Meðal annars sem boðið var upp má nefna ríkisdali frá seinni hluta 18. aldar sem prentaðir voru á bakhlið da