Greining á tönnum sýnir að grameðlur voru með heitt blóð

Vísindamenn hafa staðfest áratugagamla kenningu um að grameðla eða Tyrannosaurus rex hefði verið með heitt blóð. Þegar steingervt fótspor eðlunnar fannst í Alaska fyrir fjórum árum bættist í þekkingarbankann að hún hefði getað lifað við kaldar aðstæður, sem er á færi fæstra skriðdýra.Ný rannsókn leiðir í ljós að grameðlan var með rúmlega 36 gráðu heitt blóð, ekki ósvipað mönnum. Blóð grameðlunnar var því óvenjuheitt fyrir skriðdýr.Þessar niðurstöður birtust í vísindaritinu Science Advancesog byggja á rannsóknum á ísótópum í örlitlum hluta úr steingervðum glerungi tanna Thomasar T.Rex, mjög heillegrar beinagrindar grameðlu sem geymd er í Náttúruvísindasafni Los Angeles-sýslu í Bandaríkjunum.Aðferðin, sem auðveldar að nota örsmá sýni, hefur verið í þróun í yfir áratug. Vísindamennirnir segja
Greining á tönnum sýnir að grameðlur voru með heitt blóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd