Bandarísk yfirvöld hafa synjað Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, um vegabréfsáritun svo hann geti sótt Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. AFP-fréttaveitan hefur þetta eftir heimildarmanni kunnugum málinu.Bandaríska utanríkisráðuneytið segist í yfirlýsingu ekki gefa út vegabréfsáritun fyrir nokkurn mann innan Frelsissamtaka Palestínu og í heimastjórninni, sakar hana um að hafa brugðist og ekki gert nægilegar umbætur á stjórnarháttum sínum þvert á loforð.Aðgerðir heimastjórnarinnar dragi jafnframt úr möguleikunum á friði. Abbas var þó ekki nafngreindur þar sérstaklega. Þetta er annað árið í röð sem bandarísk yfirvöld synja Abbas um vegabréfsáritun. SAKA PALESTÍNUMENN UM AÐ SÆKJAST EFTIR EINHLIÐA VIÐURKENNINGU Í fyrra þurfti Abbas, sem er leiðtogi Fatah, þ