Jarðskjálftahrina við Reykjanestá hefur færst nær landi

Tölvuverð skjálftavirkni hefur verið suðvestur af Reykjanestá.RÚV / Ragnar VisageJarðskjálftavirkni færðist í aukana að nýju suðvestur af Reykjanestá laust fyrir miðnætti. Hrinan hefur færst nær landi en hún var í gær og flestir skjálftanna eru nú um 30 kílómetra suðvestur af tánni, að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Bjarki segir um sextíu jarðskjálfta hafa mælst á þessum slóðum frá því fyrir miðnættið, flestir undir tveimur að stærð, nokkrir um þrír og þeir stærstu rúmlega þrír. Bjarki segir engin merki um gosóróa, virknin þurfi í sjálfu sér ekki að þýða nokkuð enda jarðskjálftahrinur algengar þarna. Einnig hefur verið nokkur virkni við Langjökul.
Jarðskjálftahrina við Reykjanestá hefur færst nær landi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd